sunnudagur, ágúst 03, 2003

Ok í gær var kannski aðfangadagskveld, en núna var kveld DJEFILSINS, sjáið til, allir byrjuðu að drekka heima hjá Emma, nema ég, ég byrjaði að drekka aleinn og yfirgefinn heima hjá mér með matnum, sem var ágætt, ég var orðinn vel fullur um 11 leitið, hvað þá 12...og ennþá meira fullur 01:00, og virkilega sjúskaður 01:30, og tilbúinn að takast á við hrikalegu raunveruleikana sem fylgja áfenginu. Ég fékk símtal sem sagði mér að fara niðrí bæ, á miðri leið mætti ég Ingu sem hafði keypt og splæst á mig miða á Papa í sjallanum. Við kíkkum fyrst á Cafè Amour, þar sem Emmi og fleiri eru, ekkert spes er að ske, fyrir utan það að Emmi er BLINDFULLUR hann er öskrandi á 5 sek. fresti, en ég er sáttur, þar sem ég er einmitt mátulega fullur til að vera "Hunter S. Thompson". Við leggjum af stað í Sjallann, á leiðinni er Emmi að öskra á fullu "Ég er svarthol" eða eitthvað álíka, og þá varð ég var við það að...hann er FULLUR. Og ég var eiginlega ekkert svo fullur, þegar inná sjallann var komið...Dó allt, allt dó, líkaminn, sálin, áfengið sem hafði fest sig í báðu var löngu horfið, bara við það að líta yfir allann helv. mannfjöldann. Eftir dálitla stund þarna inni...að gera nákvæmlega ekki neitt nema láta okkur leiðast, stungum við Inga af, heim til mín, síðan fór hún heim til sín af því að hún hélt að ég gæti ekki gert nógu góða samloku fyrir hana...SEM ÉG OG GET!