laugardagur, júlí 19, 2003

While Drunk Stuff



Ég hlóp inná klósett til að pissa þannig að ég var orðinn más þegar ég loksins komst þangað (annað hvort bý ég í stóru húsi eða ég var bólufreðinn og hélt að það væri langt hlaup og stór gangur) og þegar ég var kominn þurfti ég að taka djúpt andann...og komst að því að það er ekkert gott að anda að sér salernislykt.

Mig langar að syngja!

Íslensku bull

Af hverju segir maður Ég hlakka en segir samt líka MIG langar, þetta eru nebbla mjög lík orð ef ekki alveg eins...ég segi alltaf MÉR langar og MÉR hlakkar, af því að ég er REBEL WITHOUT A CAUSE, og mér finnst þetta réttara, sættið ykkur við það ....þið sem viljið það ekki.

I'm Lonely!

Afsakið hvað ég er seinn að skrifa, ég hef bara ekki verið að gera neitt spennandi undanfarið eiginlega, sem er helv. sorglegt...en ég lofa mínum hardcore aðdáendum, að ég mun djamma fram í rauðan dauðann í kveld og skrifa allt...sem ég man.

Mér var boðið að koma með í kjarnaskóg með svefnpoka og áfengi í gær, 1.2% af mér langaði til að fara, þessi 1.2% eru þau prósent sem líkar við náttúru og þannig bull. En félagskapurinn hefði bætt allt upp reyndar, mest allt sem maður gerir með þessu fólki, sem ég má ekki nefna (Þau báðu um nafnleynd), er skemmtilegt. En í þessu tilviki var ég eiginlega búinn að ákveða að gera annað, eins og að borða grillmatinn sem var heima hjá mér, og fara í bíó með litlu systur minni, sem ég gerði. En ég bæti upp fyrir þetta með því að fara og djamma í kveld, vonandi fara allir sem fóru í gær. Nema kannski ef allir aðrir eru þunnir, þá endar það með því að ég þarf að fara einn út að djamma. En allavega....

ef þú hefur ekki áhuga á comic books, slepptu þá þessari málsgrein

(hvað er annars málsgrein)

Ég fór með systur minni The Hulk í gær, sem var alveg helvíti góð, ég elska Marvel bíómyndir. Ég hef séð X-Men, X-Men 2, The Hulk, Spiderman, og síðan var ég að horfa á DareDevil áðan hún saug by the way. Eins og þið kannski vitið þá er ég geðveikur Wolverine aðdándi...þar sem geðveikur þýðir ekki "voðalega mikill" heldur er ég geðveikur og líka wolverine fan. Þess vegna hef ég mjög gaman af því að horfa á allar þessar marvel bíómyndir, mér finnst bara asnalegt að þær tengist ekki allar og þær eru ekki gerðar eins og upprunalega sagan er. T.D. kemur Wolverine fyrst fram í Hulk blaði, og Jean Gray er ekki dauð, ekki heldur Lady Deathstrike, né Sabretooth, helmingurinn af þessu liði er ekki dautt..mér finnst að ef maður er að búa til bíómynd eftir sögu, allavega að hafa það eins...en ekki að búa til glænýja sögu.

En ástæðurnar fyrir því að ég fíla Wolverine er:

Wolverine er ekki eins og Batman né Superman, Batman og Superman drepa aldrei vondu kallana, heldur berja þá í hausinn og hringja á lögguna, Wolverine drepur allt og alla, and does so with style. Og Wolverine er geðveikt svalur massi, með flott hár og flotta barta. Og...hann er svo krúsí

Allavega, ef þið viljið sjá myndir af verðlaununum sem ég hef unnið og nýja Wolverine frontinu mínu smellið þá hér.


Grímur smelltu hér



Og ef þið eruð að fara að kaupa ykkur tölvu og peningar skipta engu, skoðið þá þetta; kröftugust tölvur í heimi það segir NASA allavega

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Núna er miðvikudagur, og það er geðveikt kúl, af því að það er bara hálfur dagur eftir af vinnu (síðan kemur helgi), sem er ekkert annað en snilld.

Ég hef eiginlega ekkert að skrifa sko, mér leiðist dáltið, en það reddast það reddast, ég er að fara í Sekk með Ingu og Grím, þannig að ég er sáttur...með lífið og tilveruna, skrifa meira á eftir eða seinna...

Later Dudes

þriðjudagur, júlí 15, 2003

Ok, mér leiðist helv. mikið þannig að ég dundaði mér dáltið og gerði pínu myndasíðu sem þið Vasteras farar viljið kannski skoða HÉR, passið ykkur samt það eru tvær myndir þarna sem eru vibbalegar, ég tók þær bara í vísindalegum tilgangi.

En hérna er síðan mynd af mér, sona, þannig að fólk viti hvernig hálfvitinn sem skrifar þetta lítur út.




En allavega, ég hef ekkert að segja, vinnan mín gerir mig svo bældan, ég svaf í allan dag og ég veit ekki hvað er að gerast eins og er, en ég lofa að ég skrifa á meira á morgun!

sunnudagur, júlí 13, 2003


"More Gonzo Journalism"



Í gær ákvað ég að detta agnar-ögn í það til að bæta upp fyrir að hafa ekki dottið í það á föstudaginn. Byrjaði á því að fá mér slatta af vodka+pepsi heima hjá mér og sú drykkja byrjaði í kringum 7, drakk einmitt vodka og pepsi með kvöldmatnum sem var sjúklega góð steik.

Seinna um kvöldið hins vegar alveg frá 11 - sona circa 2 þá sat ég inni í eldhúsi að spjalla við pabba um ýmsa hluti sem eru að ske í samfélaginu og sollis. Með þessu spjalli bauð pabbi mér Jagermeister og Whisky sem ég þáði, og þegar fór að líða á kveldið vorum ég og pabbi orðnir ansi skrautlegir, og ég beið og beið eftir að Inga kæmi og gæti farið út að byrja djammið, en hún kom ekki fyrr en rétt fyrir kl 2, og þá var ég orðinn piss-fullur. Sem var bara ansi gaman sko.

Við fórum út og fórum á Cafe Amor og þar hitti ég mér til mikillar gleði og ánægju Emma og Finn. En ég hitti fleiri, ég hitti Huldu, Aua, Sólveigu. En allavega, rétt eftir það fór ég að barnum og keypti mér tvöfaldan Vodka í Sprite og þambaði hann (hann drykkinn). Við sátum við borð á efri hæðinni á Cafe Amor, Ég, Emmi, Inga, Finnur og Aui. Ég stóð upp frá borðinu og fór að barnum aftur og tók þá vatnskönnu sem var á borðinu án þess að barþjónninn tæki eftir því, fór með hana aftur að borðinu. Ég hélt á henni eins og bjórkönnu og þambaði úr henni, gerði mér ekki grein fyrir því að vatn er ekki áfengt. Síðan eftir að hafa setið þarna í pínu stund og reynt að haga mér vel, alveg örugglega án árangurs, fattaði ég að hárið mitt væri ómögulegt, þannig að ég tók og helti úr vatnskönnunni yfir hárið mitt og greiddi það aftur, til að reyna að líta út eins og Robert De Niro. Það virkaði sona tæplega, auk þess sem ég sullaði yfir allt borðið og yfir skyrtuna mína þegar ég reyndi þetta. Ahhh

Inga sat við hliðina á mér og sagði "Hey þarna er gunni", ég svaraði "ha gunni?!", og hún varð fúl af því að þegar ég er fullur heyri ég illa og haga mér illa, og svaraði "Nei GULLI" og ég lít við og sé gamlan bekkjarfélaga og vin Gunnlaug sitjandi í sófanum þarna í horninu, sem ég stekk strax upp og sest við hliðina á honum í sófanum, bulla einhverja steypu í honum, mig minnir að hann hafi farið að hlæja, en alveg örugglega bara að mér en ekki með mér. Iss what the fuck do i care?!, ég er entertainer, ég á að skemmta fólki any means possible!

Ég stend upp og fer að pissa og á salerninu hitti ég Silla,.....eða Stebba, ég meina...þegar ég er fullur geri ég ekki greinamun á tvíburum, og ég bullaði eitthvað í honum líka, man ekkert hvort hann hló eða ekki.

Rétt eftir þetta tökum við eftir að það er verið að spila Michael Jackson á fullu, og við fáum okkur fullsödd, (þótt sársvöng við séum) og ákveðum að fara eitthvað annað, pöbbarölt eða eitthvað. Og við leggjum af stað, en þegar við erum komnir að útganginum tökum við eftir að það vantar Ingu og við setjumst niður og bíðum eftir henni. En eftir að hún kemur til baka af salerninu sem ég vissi ekki að hún hafi verið á, þá sest hún niður hjá okkur hjá útgangsborðinu...og við gleymdum því að við ætluðum að fara út, þangað til 10 eða 20 mín seinna, þá ákveðum við aftur að fara út og við gerum það.

Síðan man ég ekkert svo mikið, nema við ákveðum að fara heim, panta pizzu og horfa á futurama, en NEI! Hérna var djöfullinn að verki, þegar við vorum lögð af stað heim, hætti Inga í símanum eftir að hafa hringt á dominos til að reyna að panta pizzu, en svo hrikalega asnalega vildi til að Dominos loka kl 3, og enginn pizzustaður er opinn sona seint....nema....TIKK TAKK, yes, ég segi þeim að fara á tikk takk og fara í röðina á meðan ég hleyp í hraðbankann að redda mongúsnum (peningnum). Ég hleyp inní tikk takk úr hraðbankanum og er þvílíkt sáttur þegar ég frétti að inga pantaði Skinku Pepperoni og Ananas, jafnvel þótt að Inga hati ananas, sona er hún góð við mig...eða...bíddu ég er að borga fyrir pizzuna...allavega... hún er góð almennt.

Síðan á meðan við erum að bíða eftir pizzunni, þá tek ég eftir pari sem er að sitja og njóta matarins síns. (þetta hljómaði asnalega.."matarins síns") og ég byrja að bulla og bulla, og þetta var svona eins og að tala um vin sinn í þriðju persónu þegar hann stendur við hliðina á sér. Ég var að segja helling af skemmtilegum og skondnum sögum, og ég talaði beint við Emma og Ingu. En ég talaði það hátt að allir aðrir heyrðu og parið fannst ég greinilega dáltið skondinn, og ég man ekki mikið meira nema að ég byrjaði að spjalla við parið og lét þá fá þessa slóð að blogginu mínu. Og þetta var held ég Final Strawið. Núna verð ég að gera eitthvað...ég hef hæfileika og ætti að fara í skóla!, ég ætla að gerast leikari! Ég hef svo gaman að því að koma fólki til að hlæja, mig langar að gera það "for a living".

En allavega, við fáum pizzuna, ég kveð fólkið sem hló að mér og við leggjum af stað heim, þegar við erum komin heim horfum við á futurama og slöppum af og borðum pizzuna, Namm! Það var gaman, síðan eftir smá stund...þá er Inga að fara heim og Emmi fer líka þannig að ég steinsofna og vakna daginn eftir með pizzuleifar útum allt gólf og pizzusósu á takkaborðinu.

Viðbót: Ég held að ég hafi kysst Emma þetta kvöld, ég sagði einmitt við Ingu áðan "Ég á það til að vilja kyssa Emma þegar ég er fullur" hún svaraði "Þú átt það til að vilja kyssa Emma þótt þú sért ekkert fullur" og ég svara og pæli "True True, but can you blame me?"

Þið ráðið hvaða ályktanir þið dragið af því, ég kem aftur með skondar pælingar og solleis helst á hverjum degi, en það er bara til að drepa tímann þangað til að ég kem með næstu Gonzo frétt.

Later Dudes!

Seiseisei...það eru pizzuklessur á takkaborðinu mínu, vá...ég var dáltið....pínu fullur í gær, og ég er sona oggupons...þunnur núna, bíddu...ég skrifa meira á eftir...maginn er ekki að höndla að sitja fyrir framan tölvuna eins og er.